Velkomin á Gallery Artboy
Um langt árabil hef ég verið með síðu uppi undir heitinu Grafísk hönnun, en vegna breytinga á starfshögum mínum, fannst mér tími til kominn að gera meiriháttar breytingar á henni. Þessi síða er liður í þeirri þróun.
Ég er menntaður grafískur hönnuður og starfaði um árabil við hönnun, bæði í prentsmiðjum, auglýsingastofum og sjálfstætt. Árið 2001 fannst mér komin að ákveðnum tímapunkti í mínu lífi og ákvað að breyta algjörlega um starfsvettvang. Fékk ég stöðu hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, að vísu í 80% starf til að byrja með, en vann við hönnun með. Haustið 2005 fékk ég svo inngöngu í Kennaraháskóla Íslands og tók þar réttindanám og öðlaðist réttindi vorið 2007 og kenni við FS á Listnámsbraut. Þegar ég hóf störf hjá FS, gafst mér meiri tími til að mála og og var með vinnustofu í fiskhúsi í Garði, en þar fékk ég inni á gamalli skrifstofu hjá þeim bræðrum Sævari og Tedda. Vorið 2007 selja þeir svo fiskhúsin og fylgdi ég með í kaupunum, en núverandi eigandi, Halldór Pétursson, vildi stækka við sig, en hann var með sína vinnslu að Gerðavegi 20a, þekkt sem Ásgeirshús af eldri Garðmönnum. Þar er ég núna með vinnuaðstöðu í kaffistofunni og hef möguleika á að hafa þar sýningaraðstöðu. Væntanlega mun sú aðstaða verða tilbúin um áramót.
Ég hef haldið nokkrar einkasýningar, sú fyrsta var í Samkomuhúsinu Garði árið 1985, en þá var ég í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og kynntist þar vatnslitum í fyrsta sinn. Fram að því var ég aðallega í olíu og teikningum. Salan gekk vel og seldi ég flestar myndir og styrktist í þeirri trú að ég ætti að halda áfram að mála myndir. Síðan hélt ég sýningu í húsi Verkalýðs- og sjómannafélagi Gerðahrepps, sem síðar rann saman við VSFK. Þegar húsið var í byggingu, leitaði formaður verkalýðsfélagsins, Jóhannes Guðmundsson, til mín og óskaði eftir að ég málaði tvær stórar myndir, sem eiga að hanga á vegg á sviði hússins og auk þess hvatti hann mig að vera með málverkasýningu þar fljótlega eftir opnun hússins. Hafði ég eitt ár til undirbúnings. Skilaði ég olíumyndunum á tilsettum tíma og nokkrum mánuðum síðar hélt ég þar aðra einkasýningu mína og seldi allar myndir. Verkalýðsfélagið keypti af mér um helming þeirra mynda sem eftir voru og seldust ekki á sýningunni sjálfri. Færi ég þeim margfalda þökk fyrir það. Var þetta 1992-3. Síðan tók við harkið, minni tími fór í að mála og meiri tími í að sækja salt í grautinn. Fór meira að segja í eigin atvinnurekstur 1998 en hætti svo í harkinu 2002, eins og fyrr segir.
Sveitarfélagið Garður hefur haldið Sólseturshátíð s.l. 3 ár og í fyrra fékk ég inni í gamla vitavarðarhúsinu og sýndi þar fyrsta afrakstur minn í olíumyndum. Var þetta frekar óformleg sýning, aðeins opin í 3 daga, eða á meðan hátíðin stóð yfir. Undirtektir voru með ágætum og ákvað ég að halda áfram að þróa mig áfram með olíulitina og ári seinna, 29. júní til 15. júlí, hélt ég svo sýningu á Byggðarsafninu á Garðskaga í tengslum við Sólseturshátíðin. Var ég með 20 málverk og seldi 10.
Í dag stefni ég að því að getað stundað myndlistina með kennslu og er þessi vinnustofa og vefsíða liður í því að koma mér á framfæri. Á þessari nýju síðu verð ég með sýnishorn af þeim málverkum sem ég er með til sölu og einnig með nokkrar myndir af þeim myndum sem ég hef selt. Einnig verð ég með teikningar og skyssur, því af þeim á ég nóg af.
Vinsamlegast hafið samband ef þú, lesandi góður, vilt fá nánari upplýsingar, hvort sem um er að ræða kaup á mynd eða pöntun á einhverju sérstöku myndefni
