Til baka
Stjórn & nefndir
Lög
Sögubrot
Nafnalisti
Lögreglugrín
Tenglar
Myndasafn
Fréttir
   
   
   
 
Fréttir

Haldið niðri Ctrl lyklinum og smellið á "Refresh" í vafranum til þess að sjá nýjustu útgáfuna af vefsíðunni.
 
 
  Fylgt úr hlaði
 

Góðir félagar til hamingju með heimasíðu Lögreglufélags Suðurnesja, nú erum við komnir í raðir Lögreglufélags Reykjavíkur og Félags rannsóknarlögreglumanna og er ekki seinna vænna. Síðan okkar tengist síðu Landsambandsins og þeim síðum sem þeir tengjast, þannig að faghliðin er í góðu lagi. Við hugsum síðuna meira sem andlit L.S. út á við ásamt því sem við bindumst vonandi sterkari félagsvitund og höldum betri tengslum við eftirlaunafélaga og fyrrverandi félaga okkar þá hafa vonandi einhverjir gaman af og vonandi sendið þið inn línu og mynd með ef vill á email formannsins kkt@simnet.is . (KK)

Fréttir 2001    Fréttir 2002   Fréttir 2003    Fréttir 2004

   
  05.05.05
  Nýtt mánaðardagatal er komið á netið. Sjá einnig góða mynd af lögreglubíl og flugvél.
   
  02.05.05
  Stjórnarkjör fór fram hjá L.S. smk. lögum félagsins því tímabil fyrri stjórnar var að renna út og sendi stjórn ekki framboðslita, einn listi var í boði, listi Jóhannesar Harðarsonar sem eftirtaldir skipa:

Kristján Kristjánsson, Eiríkur Sigurjónsson, Bjarki Sigurðsson, Daði Þorkelsson.

Varamenn: Sigurbergur Theodórsson og Róbert Sigurðsson.

Þátttaka í kosningunni var góð eða 66% og hlaut listinn glæsilegt fylgi eða 89,3%.

Fyrrverandi stjórn er þökkuð hennar fórnfúsu störf og lofaði hluti þeirrar stjórnar að halda í hendina á Jóhannesi fyrstu skrefin en KK ,Eiríkur og Sigurbergur tóku það að sér að beiðni Jóhannesar.

Jóhannes er boðinn hjartanlega velkominn sem nýr formaður L.S. næstu tvö árin að minnsta kosti.

Ekki barst neinn listi í 1. atrennu og var lagt hart að Jóa að leggja fram lista sem hann féllst á og var niðurstaðan sú sem að ofangreinir.

Aðalfundur er boðaður þann 29.maí kl, 17:00 í Skálanum og verður hann með léttu vorhugarfari því jafnframt er boðið upp á grillveislu með tilheyrandi. (KK)
   
  01.04.05
  Nýtt mánaðardagatal er komið á netið.
   
  06.03.05
  Ný skopmynd á vefsíðunni lögreglugrín, en þar má sjá (neðst) flugvallarlögregluna í augum skopteiknara. Smellið hér.
   
  04.03.05
  Nýtt mánaðardagatal er komið á netið.
   
  01.03.05
  Andlátsfréttir: Kjartan Finnbogason andaðist föstudaginn, tuttugasta og fimmta febrúar sl.

Kjartan starfaði í lögreglunni á flugvellinum vel á fimmta áratug eða frá 1.6.1951, uns hann fór á eftirlaun.

Kjartan var vel liðinn starfsfélagi og sem varðstjóri var hann sérlega skilningsríkur og sanngjarn. Ég var undir hans stjórn í átján ár og var ég mjög ánægður með lipurð þá og skilning sem hann sýndi undirmönnum sínum og almenningi.

Blessuð sé minning góðs félaga og vottum við í lögreglunni fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Útför Kjartans fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn fjórða mars n.k. kl. 14.

Lögreglumenn héðan munu standa heiðursvörð og fá að bera kistu hans í kirkjugarðinn. L.S. fær að sýna hinum látna félagsmanni virðingu með því að hafa félagsfánann í kirkjunni meðan á útför stendur.

   
  28.02.05
  Veisla L.S. ,,Þorrablót” 2005 fór fram þann 25. 02. Mæting var góð, veðrið lék við okkur og spilaði Ásgeir harmonikkuspilari fyrir gesti utandyra. Matarveislan var í Jónasarskálanum, sem búið var að laga nokkuð og merkja.
Mættu margir góðir gestir, þar á meðal yfirmenn, frá ráðuneytinu og sýslumaður, auk nokkurra eftirlaunaþega.
Góð skemmtun og voru veitt verðlaun fyrir skotmótið og gamlan þorralegan klæðnað. Sjá myndir. KK
   
  09.02.05
  Myndir frá Jónasarskotmótinu 2005.
 
  07.02.05
  Jónasarmótið var haldið fyrir stuttu og var þátttaka mjög góð, en 23 keppendur mættu til leiks og náðu margir mjög góðu skori.

Fjórir efstu menn í einstaklingskeppni:
Sigurbergur Theodórsson 100% og 14 X -- Friðrik K Jónsson 100% og 12 X
Jóhann R Benediktsson 96% og 14 X – Einar Ó Karlsson 96% og 14 X

Sigurvegarar í sveitarkepppni, sveit yfirstjórnar með samtals 365 stig og 38 X

Sveitina skipa: Jóhann R. Benediktsson – Matthías G. Pálsson
og Ásgeir Ásgeirsson.
Í öðru sæti varð C vaktin og í þriðja sæti A vaktin.

   
  03.02.05
  Þorrablót L.S. í Jónasarskála
   
  01.02.05
  Nýtt mánaðardagatal er komið á netið.
   
  26.01.05
  Fróðleiksferð til Montreal í Kanada

A-vakt Landamæradeildar lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli mun þann 2. febrúar næstkomandi hefja sig til flugs til Vesturheims, nánar tiltekið til Kanada. Ferðin mun taka 4 daga og er ætlunin að heimsækja starfsmenn landamæravörslunnar á alþjóðaflugvellinum Trudeau í Montreal. Þegar hafa Kanadamenn sett upp dagsskrá af tilefninu og mun íslensku lögreglumönnunum verða kynnt starfsemi flugvallarins er lýtur að landamæraeftirliti og eftirliti með útlendingum. Ýmsar deildir verða heimsóttar af þessu tilefni og starfsemi þeirra skoðuð. Megináhersla verður þó á mansal og smygl á fólki, mál sem Kanadamenn þekkja ágætlega. Frekari fréttir af þessu ferðalagi verða fluttar þegar heim verður aftur komið.

Tveir lögreglumenn frá embættinu við kennslu í Lögregluskóla Ríkisins

Vegabréfasérfræðingar Landamæradeildarinnar á Keflavíkurflugvelli, þeir Magnús Kristinsson aðalvarðstjóri og Eiríkur Hafberg Sigurjónsson lögreglumaður, sinna nú kennslu í fölsunarþáttum ferðaskilríkja og öryggisþáttum vegabréfa ásamt fleiru í Lögregluskóla ríkisins. Er kennsla þeirra hluti af kennslu í málefnum útlendinga sem lögregluskólanemar fá. Eru þeir Magnús og Eiríkur sammála um að hópurinn sem nú er við nám í skólanum virðist vera samsettur úr prýðisfólki sem sannanlega sýni náminu áhuga - og slíkt skiptir máli ef árangur á að verða. (Eiríkur Hafberg)
   
  18.01.2005
  Nýr og glæsilegur fótboltabúningur sem L.S. tók í notkun fyrir skemmstu. Kv, KK - sjá mynd.
   
  17.01.2005
  Ný husgögn hafa verið keypt í Skála L.S. ásamt vönduðum hljómflutningstækjum. Þá er byrjað að lagfæra Jónasarskálann en þar mun m.a. fara fram Þorrablót okkar, etið úr trogum og drukkið að hætti fornmanna. Fyrirhugað er að veita verðlaun fyrir gott gervi sem fornmaður og fl. Jónasarmótið verður haldið um næstu mánaðarmót en þar verður keppt í skotfimi með glock. Kveðja KK
   
  15.01.2005
  Áhugaverðar upplýsingar um skipsklukkuna okkar:

Skipsklukkan okkar er gjöf frá herlögreglunni á Keflavíkurflugvelli, Naval Station Security Department.
Hún slær samkvæmt gamalli hefð um skipsbjöllur 1-8 slög.
Í árdaga var aðeins um stundarglas að ræða til sjós og glasinu snúið á 30 mínúta fresti, í hvert sinn sem skipstjórinn sneri glasinu við, sló hann í skipsbjölluna og bætti við einu höggi á hálftímafresti.
Lýsing á slættinum: Vaktir stóðu í fjórar klst. og var stundarglas notað og því snúið á þrjátíu mínútna fresti.
Dæmi: Átta högg voru slegin í lok vaktar, þá var stundarglasinu snúið og eftir hálfa klst. þurfti að snúa því aftur, þá var jafnframt slegið í skipsbjölluna einn sláttur. Næst þegar snúið var þá voru slegin tvö högg, en þá var liðinn einn klukkutími af vaktinni. Síðan koll af kolli uns 4 tímar voru liðnir en þá var vaktaskipti og átta högg slegin.
Dæmi : Vakt byrjaði kl.12 þá var 1 högg slegið--
12:30. 2 högg -- 13:00. 3 högg -- 13:30. 4 högg--14:00- 5 högg-- 14:30. 6 högg--
15:00. 7 högg-- 15:30.-- 8 högg 16:00. (Vaktin búin og byrjað að nýju)
   
  10.01.2005
  L.S. samþykkti með undirskriftarsöfnun félaganna að gefa 100.000,- til Rauðakrossins vegna náttúruhamfaranna í Asíu . Framlagið er um 2700,- á hvern félagsmann nú. Kveðja KK.

Mánaðardagatal - janúar.