Til baka
Stjórn & nefndir
Lög
Sögubrot
Nafnalisti
Lögreglugrín
Tenglar
Myndasafn
Fréttir
   
   
   
 
Fréttir 2001
 
 
  27.12.2001
  Albert Albertsson fyrrverandi yfirlögregluþjónn andaðist þann 23.12.2001. Albert var fæddur 18.apríl 1926. Hann starfaði hér frá 15.febrúar 1951 þangað til hann fór á eftirlaun um sjötugt. Blessuð sé minning hans. (KK)
 
  18.12.2001
  Almenna lögreglan flyst nú aftur á lögreglustöðina í Grænási, en ýmsar þarfar lagfæringar hafa staðið yfir í Grænásnum. Varðstofan við FLE verður þó áfram notuð vegna starfseminnar þar. Við erum því í reynd á 4 stöðum í suður byggingunni í FLE. Utan við FLE í bráðbirgðarhúsnæði þar. Í leiguhúsnæði í Suðurflugi og síðan í Grænási og til stendur að flytja bráðabirgðarhúnæðið að Aðalhliðinu og utan við Grænásstöðina, vegna þrengsla á öllum stöðum, en fangaklefar eru notaðir hjá grönnum okkar í Keflavík. (KK)
 
  14.12.2001
  Bjarni Júlíus Gíslason fyrrverandi varðstjóri andaðist í hárri elli 10.12. 2001

Bjarni heitinn var fæddur tíunda júli 1915 og hóf hann störf í lögreglunni á Keflavíkurflugvelli þann 1. febrúar 1947. Bjarni var höfundur að nafni félagsins, Lögreglufélags Suðurnesja . Hann starfaði til sjötugs. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju þann 20. des.n.k. Heiðursvörður frá lögreglunni verður við útförina. (KK)

 
  29.11.2001
 
 

Sýslumaður hefur boðað til starfsmannafundar að beiðni formanns og verður hann haldinn 4.desember næstkomandi í Skálanum kl. 16.00.

Dagskrá: Húsnæðismálin, fjármálin, málefni lögreglu almennt og önnur mál. Léttar veitingar verða í boði. (KK)

 
  03.11.2001
  Mjög góð þátttaka var á haustfagnaðinum og komu um 85% félagsmanna. Almenn ánægja var með fagnaðinn og ekki hvað síst með Time Care kerfið, spurðu menn mikið og útskýrði Róbert, sérfr. kerfið vel. (KK)
 
  01.11.2001
  Öryggisnefnd hefur verið kosin hjá embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli og hefur þegar tekið til starfa. (KK)
 
  30.10.2001
  Þann 31.okt. n.k. ætlum við hjá L.S. að halda Haustfagnað, eta drekka og vera glaðir. Boðið verður upp á mat og drykk og Trúbador. Ekki veitir nú af að slaka nú örlítið á.

Siðast en ekki síst þá verður einnig fræðsla á borðstólum: Time Care kerfið verður kynnt öðru sinni af sérfræðingum frá Time Care á íslandi. Kerfi þetta býður upp á nýja hugsun um vinnutímann, m.a. að hver og einn skipuleggi sína vaktatöflu, en hugbúnaðurinn sér um að halda utan um allt saman. Best að segja ekki meira að sinni þar sem kynningin hefur ekki farið formlega fram. Aðilar í stjórn L.S. og yfirmenn embættisins hafa lýst yfir miklum vilja til að prófa kerfið, vilji starfsmenn það. (KK)
 
  27.10.2001
  Stíf fundarhöld standa yfir milli stjórnar og embættisins vegna stöðu mála á svæði L.S., en hversu viðkvæm þessi mál eru, þá getur formaður aðeins sagt að allir aðilar eru að reyna sitt besta, í sátt og samlyndi. Til að mynda lánaði aðstoðar yfirlögregluþjónn Halldór Rósmundur okkur stjórnarmönnum skrifstofu sína, þar sem við gátum fengið næði og aðgang að tölvum og símum. (KK)
 
  19.10.2001
  Útför Björns Pálssonar varðstjóra fór fram að viðstöddu fjölmenni og stóðu lögreglumenn frá okkur heiðursvörð. (KK)
 
  13.10.2001
  Andlát.  Björn Pálsson, fyrrum lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli andaðist 13. október eftir erfið veikindi. Björn hætti fyrir nokkrum árum og fór þá á eftirlaun. (KK)
 
  11.10.2001
  Miklar annir hafa verið hjá lögreglunni á svæði L.S. að undanförnu og ekki hvað síst eftir hryðjuverkin hroðalegu þann 11.sept. sl. Allir leggjast þó á eitt við að halda sjó. (KK)
 
 
01.06.2001
 


*Það má segja að við séum nú á tímamótum, því að í fyrsta skipti frá ´56 þá er hin eiginlega lögregluvarðstofa ekki lengur í lögreglustöðinni því við erum fluttir í bráðabirgðahúsnæði við FLE.

*Þá erum við teknir við vegabréfaskoðun í FLE og með Schengen samstarfinu þá heyrir vegabréfaskoðunin undir lögregluna.

*Sér vegabréfadeild var stofnuð, en í reynd vinna all flestir lögreglumenn á vöktum við þessa skoðun.

*Jafnframt sinnum við vopnaleit, í samstarfi við Tollgæsluna.(KK)