|
Fréttir
|
|||||||
|
Fréttir
2002
Haldið niðri Ctrl lyklinum og smellið á "Refresh" í vafranum til þess að sjá nýjustu útgáfuna af vefsíðunni. |
|||||||
|
|
|||||||
| 24.12.2002 - Gleðileg Jól | |||||||
| Sendum jólakveðju til allra félagsmanna og annarra lögreglumanna, sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli og öðrum starfsmönnum embættisins, og óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Jólakveðja | |||||||
| 19.12.2002 | |||||||
| Útför Grétars Finnbogasonar fyrrum lögreglumanns á Keflavíkurflugvelli fór fram þann 19.des 2002. frá Hafnarfjarðarkirkju. Fjölmenni var viðstatt útförina og stóðu lögreglumenn héðan heiðursvörð og báru kistuna úr kirkju. Félagsfáninn nýji var nú notaður í fyrsta skipti við útför félagsmanns og naut hann sín vel í kirkjunni . Þess þess má geta að Grétar heitinn var einn af stofnendum L.S. fyrir 53 árum og fór útförin fram á afmælisdegi L.S. Aðstandendur gáfu okkur leyfi til að nota fánann til heiðurs Grétari heitnum. Prestur flutti kveðju frá félaginu og gat þessara tíðinda. Blessuð sé minnig góðs félaga. Mynd 1 - Mynd 2 | |||||||
| 17.12.2002 | |||||||
| Félagsfundur er boðaður 04.01.2003 kl. 20:00 og er vonast eftir mjög góðri þáttöku, þar sem flest okkar mál verða til umræðu. Þá verður boðið upp á léttar veitingar og öl ásamt að gestum verður boðið og vonandi fæst Trúbador. (KK) | |||||||
| 13.12.2002 | |||||||
| Nú
er starfsmannafundur embættisins liðnn og brustu þar síðustu
vonir okkar um að í bráð yrði um úrbætur
að ræða í aðbúnaðarmálum, að
sinni að minnsta kost. Engar fréttir voru heldur birtar af vopnasamningi.
Það eina sem búið var að gera er að reikna
út áunninn frí vegna þeirrar vinnu sem fór
fram eftir 11.sept. 01, en þar voru ákvæði hvíldartíma
brotin svo vikum skipti. Stjórn kom þegar saman og samþykkti að biðja L.L. um aðstoð okkar mála sem þegar var búið að kynna fyrir þeim, en síðan samþykkt að halda að sér höndum fram yfir 10 des., en þá var að vænta frekari frétta. (KK) |
|||||||
| 13.12.2002 | |||||||
| Andlát, Grétar Finnbogason lést þann níunda desember s.l. Grétar gerðist lögreglumaður hér á árdögum okkar embættis og var einn af stofnendum lögreglufélagsins 1949. L.S. mun fara þess á leit við aðstendendur að fá að hafa fána félagsins við útförina og munu lögreglumenn héðan standa heiðursvörð. Blessuð sé minning góðs félaga. Grétar verður jarðsettur frá Hafnarfjarðarkirkju (stærri kirkjunni, við íþróttahúsið) þann 19. des. n.k. kl. 13.30, en það var einmitt þann 19 des. sem L.S. var stofnað. (KK) | |||||||
| 16.11.2002 | |||||||
| Hugleiðingar H-mannsins: | |||||||
| 14.11.2002 | |||||||
| Aukaþing L.L. fór fram 13.nóv. En á þinginu í vor var ákveðið að fresta ákvörðunartöku um nokkur veigamikil mál. Það stór mál að í reynd var ekki hægt að blanda þeim málum saman við önnur. Aðalmál þingsins var hvort ekki ætti að stokka upp öll lögin og uppbyggingu L.L. Einnig hvort nú ætti að stíga skrefið til fulls og láta kanna samkvæmt lögum BSRB hvort L.L. vildi vera innan eða utan bandalagsins. Þingið byrjaði rólega eftir hefðbundið ávarp formanns, þá var fyrrverandi formanni L.L. gefið orðið og í framhaldi formanni BSRB. Ræður þeirra beggja voru góðar og lögðu þeir sig fram um að róma hið góða samstarf sem hefur verið á milli aðila. Þá báðu þeir alla viðstadda að fara nú varlega og splundra ekki því sem við nú hefðum. (meira) | |||||||
| 30.10.2002 | |||||||
| Óvissuferðin
hófst í Skálanum með léttum veigum og upphitun.
Þaðan var farið í rútu áleiðis til
Reykjavíkurhafnar, með akstri að Bessastöðum. Dóri
sá um gítarspil og stýrði hópsöng.
Farið var um borð í Hafsúluna og eftir dvöl við
hafnargarðinn, þar sem m.a. yfirmenn embættisins Jóhann
og Tinna heilsuðu upp á mannskapinn, var farið í siglingu
um sundin blá í þvílíkri blíðu
og tunglskini ásamt sterkum norðurljósum með ljósadýrð
höfuðborgarinnar í kring að ekki verður á
betra kosið. Tók þá við tónlist og söngur
frá Torfa Trúbador. Þá var tekið til við
góðan mat, sem var fjölbreytt hlaðborð, dundað
sér við söng, dans og að maður er manns gaman. Upp
úr miðnættinu var komið til baka og tel ég að
ferðin hafi tekist vel, þrátt fyrir að forföll
hafi orðið of mikil frá boðaðri þátttöku.
(KK) . Myndir frá Óvissuferðinni |
|||||||
| 15.10.2002 | |||||||
| L.S. mun á næstunni halda haustfagnað og að þessu sinni fara í óvissuferð, þar sem boðið verður upp á eitt og annað skemmtilegt. Skilyrði er að taka með sér góða skapið, gleyma starfinu og vera frjálslega og vel klæddur. (KK) | |||||||
| 14.10.2002 | |||||||
| Afmælisbörn L.S. 2002: Jón H. Sveinsson átti 50 ára afmæli 31.ágúst og Gunnar Ó. Schram varð 40 ára 12. október. (KK) Mynd | |||||||
| 07.10.2002 | |||||||
| Formaður
og gjaldkeri fóru á fund sýslumanns í framhaldi
af stjórnarfundinum fyrir skömmu og var farið yfir stöðuna.
Samþykkt var að hittast aftur í byrjun desember og taka
ákvörðun um framhaldið. Fundurinn var, að mati formanns, góður og er hann bjartsýnni á að nú fari að rofa til. (KK) |
|||||||
| 02.10.2002 | |||||||
| Stjórn
L.S. hélt stjórnarfund 24.sept. 02 og mættu, auk stjórnarmanna
og formanns öryggisnefndar embættisins, formaður LL ásamt
framkvæmdarstjóra á fundinn. Fundarefnið var að kanna hvað hægt væri að gera í málum félagsins, sem allt of mörg eru ennþá út af borðinu. Þeir LL menn gáfu okkur góð ráð og tóku að sér viss mál. (KK) |
|||||||
| 27.08.2002 | |||||||
| Þórður
Jónsson, fyrverandi lögreglumaður hér og í
RVK, færði L.S. enn og aftur gjafir, nú gömul persónuleg
skjöl úr dánarbúi Benedikts Þórarinssonar,
fyrsta yfirlögregluþjóns hér. Þá færði
hann okkur ljósmyndir sem eru frá 1955 til rúmlega
1960. (KK) Skjal 1: JYU-DO Skjal 2: Þakkarbréf KK Skjal 3: Gamlar myndir (neðstu fjórar) |
|||||||
| 06.05.2002 | |||||||
| Neyðarfundur
var haldinn hjá L.S. vegna furðurlegrar uppákomu varðandi
bréf frá skrifstofustjóra embættisins um vopnaburð
og þóknun vegna hans. L.S. menn hafa gengið með vopn
síðan 11. sept 2001 og hafa samningar ekki náðst.
Samþykkt var með öllum atkvæðum á fundinum
að ekki yrði skrifað undir þetta bréf, heldur yrði
stjórn L.S. falið að reyna að semja um vopnaburðinn. Nýr félagslegur trúnaðarmaður L.S. var kosinn í leynilegri kosningu, skv. lögum L.S. Nafn hans er: Einar Ó. Karlsson. (KK) |
|||||||
| 01.05.2002 | |||||||
|
Aðalfundurinn fór fram s.l. föstudag og var mikill einhugur í mönnum og sátt og samlyndi hvíldi yfir vötnunum. (KK) Gamlar myndir fengust hjá Einari Arasyni og eru sumar frá um 60. Smellið hér ef þið viljið skoða þær. Einnig fengust upplýsingar frá Guðbrandi Þorsteinssyni eftirlaunaþega, sem var gjaldkeri L.S. 1952, varðandi skemmtilegt baráttumál frá 1952. Sést á þessum gögnum að ýmislegt er skylt með málum þá og nú, við höfum þó bíla, en engan fangaklefann. Þeir sem hafa áhuga á að skoða þessi skjöl smellið hér: Bls 1 - Bls 2 - Bls 3 (KK) Nýjar myndir á vefsíðunni, m.a. frá þinginu hjá LL og þar er m.a. mynd af nýja fánanum okkar í bakgrunni og fremst má sjá dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóra og þingfulltrúa. Einnig má sjá myndir frá Billiardmóti sem haldið var um dagana. (KK) |
|||||||
| 21.04.2002 | |||||||
| Nýr
og glæsilegur fáni L.S. hefur verið gerður og var stuðst
við merki L.S., en blái liturinn skerptur , fáninn stækkaður
um ca 60 %, stafagerð breytt, neðst er fáninn í spíss
þá er sömuleiðis þar gyllt kögur og gyllt
snúra á jöðrum. Gyllingin í merkinu er mjög
raunveruleg og dúskar niður úr kögri og tveir sitt
hvoru megin að ofan niður frá þverstönginni. Allt
útsaumað af mikilli snilld þeirra nunnanna í Firðinum. Húnn er útskorin lögreglustjarna, sem er gerð öldruð og gyllt. Þá var sömuleiðis skipt út stöng og fæti vegna hátíðlegra athafna. Fáninn var afhjúpaður á þingi Landsambandsins sem fram fór í Munaðarnesi frá 15.-18. apríl. Þingið þótti vera málefnalegt og jákvætt. Nýr formaður var kosinn og er það Óskar Bjartmarz formaður L.R. L.S. fékk mann í aðalstjórn og er það Einar Aðalbjörnsson. Fulltrúar frá L.S. voru Einar Aðalbjörnsson og Kristján formaður L.S. Kristján vildi mun meiri og beittari umræðu um ýmis mál á þinginu, en menn voru ekki sammála því að gera of mikið í málunum að sinni. Einkum var KK óánægður með að ekki lækkuðu ársgjöld meira og að L.S. fengi ekki viðbótarfulltrúa á þingið en 16 stöðugildi héðan voru ekki talin með, en þau eru skipuð óskólagengnum mönnum. Beðið var um að tala þeirra gilti sem væru að störfum í janúar það ár sem þingið fer fram. Myndir frá þingi 2002 má finna á myndasafnssíðunni, undir linknum "Nýjar myndir". Aðalfundur L.S verður haldinn 28. apríl n.k. kl. 20:00 í skála L.S. (KK) |
|||||||
| 18.03.2002 | |||||||
| Útför
Sigfúsar Þorgrímssonar fór fram frá Vídalínskirku
í Garðabæ þann 18.mars 02 Heiðursvörður lögregunnar stóð yfir kistunni meðan útför fór fram og báru lögreglumenn héðan kistuna úr kirkju.(KK) |
|||||||
| 17.03.2002 | |||||||
| L.S.
fékk í sínar raðir gömul og góð
gögn um starfssemi L.S. á fyrstu árum félagsins,
en Guðbrandur Þorsteinsson fyrrum lögreglumaður og stjórnarmaður
í L.S. um áraraðir, fann í sínum hirslum
gamlar gjaldkera bækur og gögn um ýmis félagsmálastörf
hjá L.S. Einnig fann hann nafnalista allra sem voru starfandi í kringum '61 og hvenær viðkomandi byrjuðu í lögreglunni, greiðslu manna á ársgjöldum og fl. Margt fróðlegt kemur fram í gögnum þessum og verða þau varðveitt í glæru til aflestrar og fróðleiks. (KK) |
|||||||
| 13.03.2002 | |||||||
| Andlát.
Sigfús Þorgrímsson fyrrum aðalvarðstjóri
á Keflavíkurflugvelli lést þann 11.03.2002. Sigfús
hóf störf 01.02.1955 og starfaði uns hann fór á
eftirlaun 01.05.1991. Sigfús var um árabil í stjórn
L.S. og lét einkum kjaramálin til sín taka. Blessuð
sé minning hans.
Árshátið lögreglumanna á svæðinu (Flugvöllur-Keflavík- Hafnarfjörður- Kópavogur) fór fram í Stapanum 2.mars.s.l. og var mæting góð, eða yfir 200 manns. Hljómar sáu um fjörið og var með ólíkindum hversu sterkir þeir eru enn þá. Árshátíðin tókst vel og var nú auglýstur ræðumaður kvöldsins, Guðni Ágústsson ráðherra. Guðni fór á kostum og var betur tekið en mörgum skemmtikröftum áður. Hann lofaði m.a. því að ef hann væri dómsmálaráðherra myndi hann ekki tala minna um lögreglumennina en hann talaði nú um blessuð dýrin "góðir menn lögreglumenn". Nú er verið að ljúka við útsaum á nýjum og glæsilegum félagsfána L.S. Þá eru nú í fyrsta skipti 16 H menn starfandi á svæði L.S. og það um hávetur, segir þetta betur en margt annað hversu komið er í okkar röðum. (KK) |
|||||||
| 25.01.2002 | |||||||
| Flugstjóri Breiðþotu Virgin Atlantic, sem lenti með 340 farþega vegna gruns um að sprengja gæti verið um borð, hrósaði lögreglunni á Keflavíkurflugvelli í hástert og þakkaði reyndar öllum Íslendingum sem veittu fólkinu hjálp. Fagmannlega var að öllu staðið að hans sögn. (KK) | |||||||
| 17.01.2002 | |||||||
|
Jólasveinamótið fór fram 28. desember síðast liðinn. Góð þátttaka var og mjög góð stemming. Jólasveinninn í ár var Annel. Annað sætið féll Halli í skaut og í þriðja sæti var Sigurbergur. Slökuðu menn síðan á fram eftir og fengu allir glaðning að gjöf. Sigurvegarar fengu veglegar gjafir. Annar formannafundur LL var haldinn 15. janúar síðast liðinn og fóru þar fram líflegar umræður um stefnu LL og ýmislegt sem þarf að undirbúa fyrir þing og heima í héraði. Fundurinn fór vel fram og var það einróma álit þeirra sem þarna voru að fundir sem þessir séu þarfir og að samstaða sé fyrir öllu. Kveðja, KK. |
|||||||