|
Fréttir
|
||||||||
|
Fréttir
2003
Haldið niðri Ctrl lyklinum og smellið á "Refresh" í vafranum til þess að sjá nýjustu útgáfuna af vefsíðunni. |
||||||||
|
|
||||||||
| 15.12.2003 | ||||||||
| L.S.
fékk nýlega frábæra gjöf, en þar var
um að ræða hafsjó af fróðleik um Varnarstöðvarnar
á Íslandi og má þar nefna margar frábærar
ljósmyndir af byggingu og rekstri V.L., sumar einstakar og eru þær
sumar frá því í síðustu heimstyrjöld
og geyma mikin fróðleik um varnarstöðvarnar og starfssemina
á svæðinu. Fyrir hönd L.S. er Friðþóri Eydal, upplýsingafulltrúa V.L. færðar hlýjar þakklætiskveðjur. Myndir frá Varnarstöðinni, Varnarstöðinni við Hornafjörð og við Heiðarfjall á austurlandi. (KK) |
||||||||
| 10.12.2003 | ||||||||
| Nýársfagnaður L.S. - Sjá auglýsingu! | ||||||||
| 10.12.2003 | ||||||||
|
Skotkeppni
L.S. ,,Jónasarmótið " var haldið þann
29. nóvember 2003 . Þátttaka var mjög góð
og mættu 17 skyttur til leiks og árangur efstu manna frábær.
Sigurvegari varð þjálfarinn sjálfur, Björn
Sveinsson með 100% árangur. |
||||||||
| 28.10.2003 | ||||||||
| Búið er að versla inn af L.S. góð tæki fyrir setustofu lögreglunnar við FLE; húsgögn, ný TV heimabíó, gervihnattabúnað og verið er að skanna flestar myndir inn og undirbúa skreytingu á veggjum. L.S er mjög ánægt með þennan aðbúnað sem við nú höfum þarna. (KK) | ||||||||
| 29.09.2003 | ||||||||
| Vinnunefndir
L.S. og sýslumanns, skipuð þeim Óskari Þórmundssyni,
yfirlögregluþjóni, Birni Bjarnasyni og Gunnari Schram
aðstoðaryfirlögregluþjóni, en frá L.S.:
Kristjáni Kristjánssyni, formanni, Guðjóni St.
Garðarssyni, varaformanni og Sigurbergi Theodórssyni, hefur fundað
að undanförnu um flest þau mál sem stjórn hafði
kynnt fyrir sýslumanni,m.a. um skreytingu á aðstöðu
lögreglumanna, reglur, fræðslu, vinnustaðasamninga, samstarf
milli manna, tækjakaup, fjáröflun, árshátíð
og fl. og fl.
Fundirnir sem fóru fram 24. og 25. sept. 03 voru að mati formanns árangursríkir og fóru fram í mjög góðu andrúmslofti og var vel tekið í allar okkar óskir og ekki annað að skilja á viðsemjendum okkar, en að það væri sameiginlegur vilji aðila að setja vinnustaðinn og móralinn þar í öndvegi, átak þetta verður sameiginlegt. Hafi aðilar þakkir fyrir. (KK) Mynd frá fundinum. |
||||||||
| 27.09.2003 | ||||||||
| Mynd frá heimsókn lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli til Aðmírálsins. | ||||||||
| 30.06.2003 | ||||||||
| A vaktin fór í sumarferð á lengsta degi árssins, farið var á sjóstöng, skotkeppni Glock, grillað, pottast, keppt í spjóti, kúlu og kringlu,borðað og slakað á. Farið heim upp úr kl. 23:00, en þá var búið að vera að frá kl. 15:00 . Dagurinn heppnaðist vel og var veðrið frábært. (KK) Smellið hér til að sjá myndir frá sumarferðinni. | ||||||||
| 04.06.2003 | ||||||||
| Þann
3. júní 03 þáði lögreglan á Keflavíkurflugvelli
boð aðmírálsins RDML J.J.Waickwicz að skoða
varnarstöðina. Ferðin var sérlega vel heppnuð og mjög fróðleg, auk góðrar matarveislu þar sem voru æðstu yfirmenn hersins. Þá var farið í heimsókn til margra deilda varnarstöðvarinnar og okkur sýnt hvað þar væri gert og flugvélar og stjórnstöðvar skoðaðar. Það var einkar ánægjulegt að vera vitni að því hversu alþýðlegir þessir menn eru, opnir og lausir við alla yfirborðsmennsku, glaðværðin og áhugi fyrir landi og þjóð sveif þarna yfir vötnum. Formaður L.S. var mjög ánægður með boðið og telur að kynni sem þessi séu mjög af hinu góða og hafi viðkomandi þakkir fyrir. Myndir frá heimsókninni. (KK) |
||||||||
| 29.05.2003 | ||||||||
| Gámar hafa verið settir upp sem eru 180 m2 og verða notaðir næstu 2 ár sem lögreglustöð alm. lögr. við FLE. Sjá myndir. (KK) | ||||||||
| 04.05.2003 | ||||||||
| Aðalfundur
L.S. fór fram í Skálanum þann 23.apríl
síðastliðinn. Fundarstjóri var Guðjón St.
Garðarsson og fundarritari Eiríkur Sigurjónsson. Ný
stjórn tók við völdum á aðalfundinum,
en stjórnarkjör hafði farið fram. Stjórnin hefur
þegar komið saman og skipt með sér verkum .
Stjórnin
er skipuð eftirtöldum: Þá var birt kosning trúnaðarmanns og var Guðjón St. Garðarsson kosinn. Nokkrar veigamiklar lagabreytingar voru samþykktar, m.a. 5. greinin um stjórnarkjörið, forvalið aflagt og listakosning tekin upp að nýju sem aðalregla, formaður kosinn sér og fl. Þá voru nýjar reglur samþykktar fyrir afmælis og gjafasjóðinn, þar sem allar forsendur hafa breyst og nauðsynlegt var að gera breytingar. Aðalfundurinn samþykkti að sýna Jónasi Jónassyni þakklætisvott fyrir óeigingjarnt starf fyrir L.S. Ákveðið var að gefa bikar með nafni hans á og láta keppa um bikarinn árlega í skotkeppni milli vakta og eða deilda innan liðssins. Hér má sjá lög félagsins í heild sinni og einnig má sjá myndir frá fundinum. (KK) |
||||||||
| 18.03.2003 | ||||||||
| Þau
gleðilegutíðindi eru að gerast að loksins loksins
er að rofa til í aðbúnaðarbálum. Almennadeildin
er að fá bráðabirgðahúsrými með
viðunandi aðstöðu fyrir bæði kynin, fataskápum,
sturtuklefum, skýrslugerðaherbergi, setustofu og borðstofu
og fl. Þá er jafnframt verið að setja upp við lögreglustöðina
viðbótarhúsnæði fyrir skrifstofudeildina. Þökk
sé öllum sem unnu að lausn málsins; ráðuneytinu,
yfirstjórn, öryggisnefndinni, form. hennar Guðjóni
St. Garðarssyni, vinnueftirlitinu og L.L. Þá er jafnframt verið að setja upp skotæfingaraðstöðu og er það samvinnuverkefni embættisins og L.S. Það styttist í aðalfund félagsins, en hann á að vera í aprílmánuði og nú fer jafnframt fram stjórnarkjör í fyrsta skipti samkvæmt nýju lögunum. Þrátt fyrir annir á tímabilinu þá er formaður þokkalega sáttur við árangurinn og vonar að ný stjórn taki við betra búi en við sem tókum við fyrir tveimur árum. |
||||||||
| 05.01.2003 | ||||||||
| Fréttir
frá félagsfundi sem haldinn var 04.01.2003: (stutt lýsing
KK) Félagsfundurinn 4.janúar fór fram í Skálanum og var mæting nokkuð góð. Þá mættu á fundinn góðir gestir, þeir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður og Ellisif Tinna Víðisdóttir, staðgengill hans. Frá L.L. mættu Óskar Bjartmarz formaður og Grétar Jónasson framkvæmdastjóri. Í lokin mættu margir góðir gestir frá lögreglunni í Gullbringusýslu og fögnuðu nýárinu með okkur samhliða því að kveðja þá H menn og konur sem hafa starfað hér um hríð, þar sem flestir þeirra fara nú í skólann . Dagskráin var um aðbúnaðarmálin, uppgjör vegna 11. sept. 01, vopnasamning, fastlaunasamning til handa almennudeildinni og fleira. Formaður
gerði grein fyrir stöðunni, en að undanförnu hafa
mál gengið hratt og vel fyrir sig í flestum okkar mála,
að undanskyldum aðbúnaðarmálum. Fundarstjóri
var Guðjón St. Garðarsson og fundarritun annaðist Eiríkur
Sigurjónsson. (KK) |
||||||||