|
Fréttir
|
||||||||
|
Fréttir
2004
Haldið niðri Ctrl lyklinum og smellið á "Refresh" í vafranum til þess að sjá nýjustu útgáfuna af vefsíðunni. |
||||||||
| 30.12.2004 | ||||||||
|
Mjög
góð þátttaka var á ,,jólasveininum",
sú mesta hingað til og fengu allir þátttakendur
jólagjöf en fyrstu þrír fengu áramótatertur
og sakamálabókina sem lögreglumenn gefa út.
Grillað var í Jónasarskála og voru menn þakklátir
og sáttir. |
||||||||
| 29.12.2004 | ||||||||
| Á
ýmsu hefur gengið hjá okkur L.S. félögum að
undanförnu og er þá vægt til orða tekið.
Enn og aftur eru það húnæðismálin sem
eru að angra okkur. Vinnueftirlitið lokaði aðgangi að
2 skúrum í Grænáshliðinu. Íslenska
lögreglan ákvað að standa 100% saman og starfa ekki
inni í nýju varðskýli sem loksins fékkst
leyfi fyrir að við færum inn í. Ekki get ég
útskýrt málið frekar því ég
er ekki enn búinn að jafna mig á þessu máli
öllu saman og vona ég svo sannarlega að loksins fari nú
að rofa til og aftur geti komið á það samstarf
sem þó örlar fyrir inn á milli. Nú erum
við ekki lengur með aðstöðu inni í bílum
allan sólarhringinn við að fylgjast með ferðum inn
og frá varnarstöðinni, því sýslumaður
útvegaði á leigu húsnæði sem við
höfum nú bækistöðvar í. Lögreglumenn ætla þó nú í dag að hittast og gleðjast í skálanum okkar, því góð aðsókn hefur verið boðuð á Jólasveinamótið í billiard. Kveðja KK |
||||||||
| 07.12.2004 | ||||||||
|
Þessari
frétt fylgja fáeinar myndir af vetrarfagnaði L.S., sem
var haldinn þann 3. des. 04. Fagnaðurinn var vel sóttur
og komu m.a. hópur lögreglumanna víða að í
heimsókn. Ó.B. formaður L.L. kynnti það helsta
sem L.L. ætlar að leggja áherslu á í nýjum
kjasamningi. |
||||||||
| 15.05.2004 | ||||||||
|
Aðalfundur L.S. fór fram þann 26. apríl og var vel mætt eða um 40 % félagsmanna. Fundurinn fór vel fram og voru umræður fjörlegar. Mikið var fjallað um þá breytingu sem nú er orðin á gömlu lögreglufélögunum í framhaldi af nýjum lögum LL, þar sem félögin breytast í deildir og á hverju svæði verði ein deild.
Samþykkt var að fresta aðalfundinum þar sem hann hafði staðið yfir vel á fjórða tíma og var orðið heitt í sumum fundarmanna. Einkum var spurt um hvort ekki væri kominn tími á að við segðum skilið við heildarsamtökin og yrðum sér, þar sem við værum einu lögreglumennirnir sem værum undir öðru ráðuneyti en öll önnur embætti. Formaður lagði fram uppkast að nýjum lögum fyrir L.S. þar sem gert væri ráð fyrir því að við yrðum áfram innan LL. Eftir langa umræðu þar sem m.a. formaður sagðist vel skilja umræðuna og hefði í reynd verið komin á þessa niðurstöðu einnig, vegna ægivalds Reykjavíkurliðssins en af 5 greiddum hlutum vegna stjórnarstarfa kæmu 4 í hlut LR félaga. Þetta væri fyrir utan fasta starfsmenn á skrifstofu LL Formaður L.S. greindi frá því að það væri meira en 1,85% af föstum launum sem rynnu í LL, því ma. rynni í sjóð sem LL stjórnaði 0,22% af öllum launum til Stall og þar væri ýmislegt sem ekki væri vanþörf á að breyta, meðal annars kom fram í máli formanns að flest annað en nám við lögregluskólann væri styrkhæft.
En þrátt fyrir allt þá teldi hann að þótt króinn sem var skapaður í skjóli nætur á þinginu og hann líkti við Michael Jackson væri vægt til orða tekið meingallaður, þá legði hann til að við yrðum innan raða LL og vonandi gætum við látið breyta þeim vanköntum sem þar væru. Niðurstaðan var sú að aðalfundinum var frestað og ákveðið að halda hann seinna, þar sem heitt var orðið í kolunum.
Framhaldsfundurinn fór fram þann 14. maí 2004 og voru ný lög L.S. samþykkt með öllum atkvæðum fundarmanna. Umræður urðu fjörugar einkum varðandi Stall og tjáðu sig margir fundarmenn um málið, þar sem ljóst væri að reglur þær sem í gildi eru hjá Stall væru mjög gallaðar. Skoruðu fundarmenn á GSG sem situr í stjórn Stall að reyna að koma þessum skilaboðum inn á borð þeirra sem þarna starfa.
Formaður hvatti fundarmenn til þess að tjá sig í skrifuðu máli á vef Guðm. Fylkis hjá LR. En hann hefur opnað á skoðunarskipti um reglur Stall . Þá kynnt hann sömuleiðis tillögu sína um Stall sem hann hafði lagt fyrir þing LL, en skýrði jafnframt frá því að nefnd þingsins hefði vísað málinu til stjórnar Stall, en málið var hins vegar það að fyrri stjórn Stall tók þessa tillögu ekki einu sinni fyrir og var þungt í formanni yfir þessum vinnubrögðum sem þarna væru viðhöfð. Hann gat þess einnig að hann skyldi nú betur en áður þá gagnrýni sem FÍR hefði haft uppi í gegnum árin og var ósáttur við útkomuna á þinginu, en þrátt fyrir allt teldi hann betra að við yrðum í samfloti með öðrum lögreglumönnum á landinu. |
||||||||
| 04.05.2004 | ||||||||
| Skotkeppni
L.S. fór fram í Jónasarskála í maí
mánuði 04 og var keppt eftir reglum ÍSL og var mótið
jafnframt notað til að velja keppendur á landsmótið
hjá ÍSL. Röð efstu 5 er: Nr. 1 Einar Ó. Karlsson með 94% þar af 25 X Nr. 2 Friðrik K. Jónsson með 92% þar af 8 X Nr. 3 Björn Sveinsson með 87,2% þar af 15. Nr. 4 Sigurbergur Theodórsson 85% þar af 17 X Nr. 5 Jóhannes með 84% þar af 14 X Jafnframt var keppt um veglegan bikar sem Unnsteinn Jóhannsson og Hjalti H. Sigurðsson fyrrum lögreglumenn hér höfðu gefið fyrir margt löngu, en þar sem skotsveitin hafði legið niðri á annan áratug var nú keppt í fyrsta sinn um bikarinn og verður hann sveitabikar þar sem efstu 3 af hverri vakt/deild/skrifstofu verða lagðir saman og samanlögð efstu skor notuð til að finna sigurvegarana. Sigurvegarar
í sveitarkeppninni og handhafar bikarins 2004 er C vakt . Keppendur
voru Óskar Halldórsson aðalvarðstjóri. Friðrik
K. Jónsson varðstjóri. Jón Sveinsson lögreglumaður. |
||||||||
| 25.03.2004 | ||||||||
| Nú
er að mestu búið að skreyta veggi í setustofu
lögreglunnar við FLE. L.S. sá um að safna og ramma inn
myndir af leik og starfi lögreglunnar frá fyrir 1950 til dagsins
í dag, ásamt myndum af 1. lögreglustöðinni,
gömlum lögreglubílum og fl. Þá var gert stór spjald af lögreglumönnum í dag, spjald sem er lifandi, því allar myndir eru festar upp á málmspjald, með segulþynnu þannig að spjaldið á aðeins að sýna þá sem eru starfandi hverju sinni. Þá er sömuleiðis nafnalisti á sér spjaldi. Umsjón með þessu er í höndum KK, en hann fékk stuðning yfirstjórnar við að sjá um verkið. Ljósmyndirnar eru teknar af ljósmyndastofunni Nýmynd. Kveðja, Kristján. |
||||||||
| 12.01.2004 | ||||||||
| Nýársfagnaðurinn hjá L.S. var haldinn þann 9.jan.04 og varð að flytja hann að hluta í veislusal Matarlystar vegna mikillar aðsóknar og þess að við vildum gera vel í mat. Að fyrirlestri Jóhanns Inga sálfræðings loknum var góður margréttaður matur á borðum. Um kl. 22 var farið í Skiála L.S. og þar haldið áfram við undirleik Trúbadors. Mjög góður rómur var gerður að fyrirlestri Jóhanns Inga en hann lagði m.a. út af vinnustaðamóral og að rækta sjálfan sig. Formaður telur að strax hafi boðskapurinn virkað því menn urðu innilegri og þökkuðu frumkvæðið sem hafi verið frábært. (KK) Smellið hér til að sjá myndir frá nýársfagnaði L.S. | ||||||||