Eigi er gott að svara í tólið og heyra bara varðstjóra-gólið. Hjá einum heyrðist kvein og kvart sem knálega bað um að færast um vakt.
Bræður!, böl má búa við og brosa í framtíð bjarta þótt bylji á mönnum af og til yfirmannsins hjarta.
Ég er sáttur frá A til Ö þó standi ég neðst á botni, ég vinn mína vinnu frá tvö til tvö með húmorinn einan að vopni.