Til baka
Stjórn & nefndir
Lög
Sögubrot
Nafnalisti
Lögreglugrín
Tenglar
Myndasafn
Fréttir
   
   
   
 
Lög Lögreglufélags Suðurnesja
 
 
 
1. grein 2. grein 3. grein
4. grein 5. grein 6. grein
7. grein 8. grein 9. grein
10. grein 11. grein 12. grein
13. grein 14. grein 15. grein
16. grein 17. grein 18. grein
19. grein 20. grein 21. grein
22. grein 23. grein 24. grein
25. grein 26. grein 27. grein
28. grein 29. grein Greinargerð
 
 
 
 
 
 
 

1. gr.

Nafn og hlutverk:
*Lögreglufélag Suðurnesja er deild innan LL, nafn deildarinnar er Lögreglufélag Suðurnesja.
*Félagssvæði þess er Keflavíkurflugvöllur og varnarsvæðin.
*Alþjóðaheitið er Keflavik International Airport Police Association, skammstafað. K.A.P.A.-- Ísl. skammstöfunin er L.S.
 
2. gr.

Tilgangur deildarinnar er:
*Að efla samvinnu og samstarf lögreglumanna.
*Að vinna að velferðarmálum lögreglumanna, meðal annars standa vörð um launakjör, vinnutíma, vinnuskilyrði, aðbúnað, tryggingar, vinnutilhögun og vinnuvernd.
*Að vinna að aukinni menntun lögreglumanna og þekkingu á starfi og öðru því sem verða má til gagns lögreglumönnum.
*Að vinna að líknar- og menningarmálum meðal lögreglumanna m.t.t. sérstöðu þeirra starfs síns vegna.
*Að byggja upp og reka eignir og félagsaðstöðu í umsjón eða eigu L.S.

*Stjórn L.S. ber að gæta þess að lög deildarinnar stangist ekki á við lög LL.

 

3. gr.

*Rétt til inngöngu í deildina hafa allir lögreglumenn sem ráðnir eru eða skipaðir og starfa við embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli.
*Félagsaðild er tvískipt, sem fullgildir félagar og aukafélagar.
*Fullgildir félagar eru allir þeir sem lokið hafa námi frá Lögregluskóla ríkisins og hafa lögreglustarfið að aðalstarfi. *Stofnfélagar teljast þeir sem voru í L.S. þá er félögin urðu að deildum. Þeir sem byrja í lögreglunni eftir þann tíma þurfa að fylla út þar til gerða umsókn.
*Aukafélagar eru þeir starfsmenn sem falla undir ákvæði laga þar að lútandi hjá Landsambandi lögreglumanna (LL).
*Réttindi aukafélaga miðast við málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum en þeir njóta ekki atkvæðisréttar né kjörgengis til trúnaðarstarfa fyrir félagið.
*Hætti lögreglumaður störfum missir hann þegar félagsréttindi og á ekki tilkall til sameiginlegra sjóða eða annarra eigna félagsins.
*Hætti lögreglumaður störfum vegna aldurs veikinda eða slyss, þannig að hann njóti lífeyris getur hann verið áfram í deildinni sem aukafélagi, óski hann þess. Sama gildir um eftirlaunaþega í tímavinnu.
*Félagsmaður er skuldbundinn að hlýða lögum, reglum og samþykktum deildarinnar og lögum LL.
*Úrsögn úr L.S. skal vera skrifleg og sendast stjórn deildarinnar.

 

4. gr.

*Aðalstjórn L.S. skipa fimm félagsmenn, formaður og fjórir meðstjórnendur, að auki tveir til vara. Þeir skulu kosnir listakosningu í leynilegri allsherjaratkvæðagreiðslu, til tveggja ára í senn, sbr. 5. gr.

 
5. gr.
Stjórnarkjör

*Kjörnefnd skal auglýsa eftir framboðslistum sem næst 4 vikum fyrir aðalfund, efnt skal til kosningar sem næst 10 dögum síðar.
*Þátttaka í kosningunni skal vera minnst 33% fullgildra félagsmanna.
*Ef aðeins einn listi er í kjöri, þá nægir 25 % kjörsókn.
*Berist enginn listi þá skal kjörnefnd stilla upp lista í samráði við stjórn og koma á kosningu innan 7 daga.
*Þátttaka í þeirri kosningu þarf að vera minnst 25% af fullgildum félagsmönnum. Sú kosning skal framkvæmd í síðasta lagi 12-15 dögum fyrir auglýstan aðalfund.
*Ef ekki verður nægileg kjörsókn þá fer strax fram neyðarkjör, sbr. 4. gr. þar sem allir fullgildir félagsmenn eru í kjöri, nema viðkomandi beiti fyrir sig undanþágu vegna stjórnarstarfa fyrir félagið síðustu 4 árin að minnsta kosti.
*Úrslit skulu birt fyrir aðalfundinn.

 

6. gr.

*Kjósa skal leynilegri kosningu um trúnaðarmann. Kosið skal það ár sem stjórnarkjör er. Öryggistrúnaðarmaður skal kosinn eftir ákvæðum laga um hollustuhætti og öryggi á vinnustað.
*Kjörgengir til trúnaðarmannastarfa eru fullgildir félagar sbr. 3. gr. þessara laga og laga LL. Kjörtímabil trúnaðarmanns er tvö ár.
*Umsjón með kosningu trúnaðarmanns skal í höndum kjörstjórnar og skal niðurstaða kosningarinnar birt að henni lokinni.

7. gr.

*Til að fella réttkjörna stjórn þarf 1/3 hluti fullgildra félagsmanna að óska eftir fundi með nafnritun þar sem vantrausts er getið. Skal stjórnin þá boða til fundar eins og um aðalfund sé að ræða. Tillaga um vantraust nær því aðeins fram að ganga að yfir 50% fullgildra félagsmanna greiði henni atkvæði sitt..

8. gr.

*Sé stjórn fallin skal kjörnefnd, sbr. 10. gr. þessara laga, sem í eru 3 fullgildir félagsmenn og tveir til vara, taka við stjórn félagsins.
*Skal kjörnefnd undirbúa stjórnarkjör innan 20 daga frá því að hún hóf störf.
*Stjórn sú sem tekur við af kjörstjórn undir þessum kringumstæðum skal starfa fram að næsta reglulega aðalfundi.

 

9. gr.

*Sá stjórnarmaður í aðalstjórn L.S. sem setið hefur tvö kjörtímabil í röð, getur skorast undan kjöri til stjórnarkjörs þriðja kjörtímabilið.
*Sama regla gildir um trúnaðarmenn og öryggistrúnaðarmenn sem starfa hjá embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli.
*Stjórn félagsins skal berast slík beiðni skriflega eigi síðar en þremur dögum eftir að auglýsing stjórnarkjörs hefur verið birt.
*Eftir þann frest skal birta félagsmönnum lista yfir þá sem verða í kjöri.

10. gr.

*Stjórn L.S. skipar þriggja manna kjörnefnd, formann, ritara og meðstjórnanda.
*Skipa skal tvo til vara.
*Kjörnefnd skal starfa í samvinnu við stjórn L.S. og í samræmi við ákvæði 5., 6. og 8. greinar laga þessara.

11. gr.

*Stjórn L.S. skipar þriggja manna stjórn íþróttadeildar, formann, ritara og meðstjórnanda. Skipa skal tvo til vara.
*Stjórn íþróttadeildar skal vera í forsvari fyrir öllum íþróttaæfingum og kappleikjum félagsmanna L.S.
*Formaður deildarinnar skal flytja skýrslu deildarinnar um starfsemina á aðalfundi L.S.
*Stjórn íþóttadeildar er óheimilt að skuldbinda félagið fjárhagslega án samráðs við aðalstjórn félagsins.
*Þá skal stjórn íþróttadeildar hafa samráð við aðalstjórn L.S. varðandi fjárútlát.

 

12. gr.

*Stjórn L.S. skipar þriggja manna skemmtinefnd, formann, ritara og meðstjórnanda.
*Stjórn skemmtinefndar fer með allt skemmtanahald og mannfagnaði á vegum L.S.
*Skemmtinefnd er óheimilt að skuldbinda félagið fjárhagslega án samráðs við aðalstjórn félagsins.
*Þá skal skemmtinefnd hafa samráð við aðalstjórn L.S. varðandi fjárútlát.

 

13. gr.

*Stjórn L.S. er heimilt að setja upp vinnunefndir, til lengri eða skemmri tíma, til hinna ýmsu mála.
*Slíkar nefndir skulu þó ekki vinna lengur en sem nemur kjörtímabili viðkomandi stjórnar L.S.
*Allar niðurstöður slíkra nefnda skulu fara fyrir stjórn L.S. til samþykktar .
* Slíkum nefndum er óheimilt að skuldbinda félagið fjárhagslega án samráðs við aðalstjórn félagsins.
*Þá skulu slíkar nefndir hafa samráð við aðalstjórn L.S. varðandi fjárútlát ef til slíks kemur.
*Spjaldskrárnefnd er skipuð og starfar skv. aukavinnuúthlutunarreglum L.S.

 

14. gr.

*Aðalfund L.S. skal halda fyrir maílok ár hvert. Til aðalfundar skal boða sbr. 5. gr. laga þessara.
*Það ár sem stjórnarkjör fer ekki fram er nægilegt að boða aðalfundinn með 15 daga fyrirvara.

 

15. gr.

Dagskrá aðalfundar:

1.Fundarsetning.
2.Kosning fundarstjóra.
3. Kosning fundarritara.
4. Skýrsla stjórnar.
5. Skýrsla íþróttadeildar.
6. Skýrsla féhirðis.
7. Lagabreytingar sbr. 28. gr. þessara laga.
8. Breytingar á aukavinnureglum sbr. Lög L.S.
9. Tilnefning oddamanns í spjaldskrárnefnd.
10. Ákvörðun félagsgjalds, sbr. 17.gr
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.

 

16. gr.

*Stjórn deildarinnar sér um að lögum, reglum og samþykktum L.S. sé hlítt.
*Hún varðveitir eignir L.S. og sér um, eftir því sem unnt er, að nefndir, deildir, og trúnaðarmenn félagsins gegni störfum sínum vel og af trúmennsku.
*Þeim aðilum sem kosnir eru, eða skipaðir til trúnaðarstarfa fyrir L.S. er skylt að inna þau störf af hendi.
*Aðilar sem vilja færast undan trúnaðarstörfum skulu færa skrifleg rök fyrir því til starfandi stjórnar innan tveggja sólarhringa frá því þeim var kunn tilnefningin.

 

17. gr.

*Félagsgjald L.S. er tvískipt: Fullgildir félagar, gjald fyrir þá er 1200,- kr. á mánuði.
*Lögreglumenn sem hér starfa en kjósa að vera utan L.S. skulu gr. stéttariðgjald til L.S. sem er kr. 900,- á mánuði. *Aukafélagar greiði félagsgjald á starfstíma sínum í réttu hlutfalli við starfstíma þeirra.
*Félagsgjald fellur niður þegar félagsmenn fara á full eftirlaun.
*Féhirði er heimilt að láta launagreiðanda innheimta félagsgjaldið mánaðarlega.

 

18. gr.

*Formaður boðar stjórnarfundi. Stjórnarfundi sitja allir stjórnarmenn og fyrsti varamaður sem áheyrnarfulltrúi.
*Heimilt er að boða alla varamenn til stjórnarfunda. Formaður stjórnar fundum eða skipar fundarstjóra.
*Ritari heldur gerðabók yfir alla fundi. Hann hirðir einnig bréf félagsins og önnur skjöl.
*Féhirðir innheimtir félagsgjöld og greiðir reikninga. Hann fer með nauðsynleg skjöl varðandi fjármálarekstur félagsins og alla sjóði sem stofnað er til á vegum þess. Hann skal og geyma allt handbært fé í banka eða sparisjóði.
*Reikningsár félagsins er 1.apríl -31. mars og ber féhirði að gera grein fyrir útgjöldum eins og hægt er eftir þann tíma, að aðalfundi.
*Allir reikningar, fjármálaskjöl félagsins og ársreikningar skulu endurskoðaðir og samþykktir af tveimur endurskoðendum úr hópi félagsmanna.

 

19. gr.

*Á fyrsta stjórnarfundi aðalstjórnar Lögreglufélags Suðurnesja eftir stjórnarkjör skal dagskrá stjórnarfundarins vera eftirfarandi:

Fundarsetning.
Stjórnin skiptir með sér verkum.
Skipun kjörnefndar L.S.
Skipun íþróttadeildar L.S. Skipun skemmtinefndar L.S.
Skipun umsjónarmanns afmælis- og gjafasjóðs lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli.
Tilnefning umsjónarmanns félagsheimilis L.S.
Önnur mál.

*Stjórn L.S. ber ábyrgð á að lög og reglur L.S. verði uppfærð í samræmi við samþykktir aðalfundar og lög LL.

 

20. gr.

*Aðalfund skal auglýsa með minnst fjögurra vikna fyrirvara, þegar stjórnarkosning er, en minnst 15 daga fyrirvara þegar ekki er stjórnarkosning.
*Almenna félagsfundi skal boða með minnst 5 daga fyrirvara á fullnægjandi hátt.
*Ef 1/4 fullgildra félaga óskar félagsfundar bréflega, skal boða til hans samkvæmt ákv. greinar þessarar.
*Stjórninni er heimilt ef brýna nauðsyn ber til að kalla saman fund með eins stuttum fyrirvara og fært þykir.

 

21. gr.

*Í öllum venjulegum málum ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum.
*Falli atkvæði jöfn, skal taka málið til annarrar umræðu og atkvæðagreiðslu.
*Falli atkvæði enn jöfn gildir hlutkestisreglan.

 

22. gr.

*Stjórn L.S. getur ákveðið leynilega allsherjaratkvæðagreiðslu um mál eftir umræðu eða afgreiðslu á aðalfundi/félagsfundi. *Meirihluti fullgildra félagsmanna getur krafist allsherjaratkvæðagreiðslu um mál þótt afgreiðslu hafi hlotið á félags- eða aðalfundi.
*Skal það þá gert skriflega með eiginhandarundirritun til stjórnar innan þriggja daga frá afgreiðslu málsins.
*Synja skal þeirri beiðni ef meirihluti fullgildra félagsmanna hefur þegar samþykkt málið.

 

23. gr.

*Þegar boðað hefur verið til þings L.L. skal stjórn L.S. ákveða hverjir skuli vera fulltrúar L.S. á þinginu.

 

24. gr.

*Aukavinna á félagssvæðinu skal unnin af félagsmönnum LL og skal ekki leita til starfskrafta annarra embætta nema nauðsyn krefji.
*Leitast skal við að jafna aukavinnu á milli lögreglumanna.
*Aukavinnuúthlutunarreglur L.S. skilgreina nánar aukavinnu.
*Öðrum en aðalstjórn L.S. í samráði við LL, er óheimilt að semja um vakta og vinnutíma sbr. m.a. 4. kafla laga LL.

 

25. gr.

*L.S. rekur sjóð sem nefnist "Afmælis og gjafasjóður".
*Sjóðurinn er starfræktur skv. reglum þar um og skv. 28. gr. þessara laga.

 

26. gr.

*Við fráfall félagsmanns í L.S. eða eftirlaunafélagsmanns, sbr. 3.gr. þessara laga, skal formaður sjá um að votta aðstandendum samúð og senda í gegnum líknarsjóð L.L. samúðarskeyti.
*Þá skal hann bjóðast til að vera milligöngumaður á milli aðstandenda og sjúkrasjóðs L.L. vegna útfararstyrks L.L.

 

27. gr.

*Ef L.S. leysist upp verða a.m.k. 51% fullgildra félagsmanna að ganga í sama félag til að geta fært eignir félagsins yfir til þess félags.
*Að öðrum kosti skal skipta eigum félagsins á milli líknarfélaga samkvæmt ákvörðun félagsfundar L.S.
*Skjöl og bækur félagsins skulu þá afhent Þjóðskjalasafni Íslands til varðveislu.

 

28. gr.

*Lögum þessum verður aðeins breytt af lögmætum aðalfundi enda hafi stjórninni borist skrifleg tillaga um breytingar eigi síðar en 10 dögum fyrir boðan aðalfund.
*Allar tillögur skulu vera rökstuddar og undirskrifaðar af tillöguflytjanda.
*Stjórninni ber síðan að kynna tillögurnar á fullnægjandi hátt í minnst fimm daga fyrir auglýstan aðalfund.
* Eftir kynningu getur aðalfundur gert orðalagsbreytingar, svo fremi að þær breyti ekki innihaldi hinnar kynntu lagabreytinga.
*Breytingar á aukavinnuúthlutunarreglum og reglum um gjafa- og afmælissjóð lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli fara fram eftir sömu reglum og gilda um breytingar á lögum félagsins.

 

29. gr.

*Öll ákvæði í lögum L.S. þurfa að vera í samræmi við ákvæði laga LL.

*Lög þessi voru samþykkt á framhalds aðalfundi L.S. þann 14. maí 2004 og falla þá fyrri lög L.S. úr gildi.
*Uppkast af lögunum höfðu legið frammi með auglýsingu fundarins og bárust engar breytingar til stjórnar.
*Umræður á framhaldsfundinum um lögin urðu litlar en formaður og varaformaður útskýrðu helstu breytingar sem gerðar höfðu verið frá fyrri drögum.
*Allir fundarmenn samþykktu lögin, engin á móti.