|
Sögubrot
|
||||||||
|
Sögubrot
|
||||||||
| Fundargerð - frá stofnfundi lögreglufélagsins - sett inn í mars 2004 (word skrá 27kb) | ||||||||
|
Fræðslupunktar
- byggðir á
fundargerðarbókum -
|
||||||||
| *Í byrjun var Lögreglufélag Suðurnesja félag allra lögregluþjóna á Suðurnesjum. Nú eru eingöngu í félaginu lögregluþjónar á Keflavíkurflugvelli og á varnarsvæðunum. | ||||||||
|
Stofnun
LS
|
||||||||
|
*Lögreglufélag Suðurnesja, skammstafað L.S. var stofnað á félagsfundi, sem 19 lögregluþjónar starfandi á Keflavíkurflugvelli og í Keflavík efndu til, þann 19. desember 1949. *Fundur þessi
var all sögulegur, því m.a. þurfti að bera
fram tillögu um að fjarlægja með valdi, gerðist
þess þörf, einn fundarmanna. Þannig að
það er ekkert nýtt að það gusti um lögreglumenn
á fundum. *Í
fyrstu stjórn félagsins voru kjörnir eftirtaldir :
*Höfundur
að nafni félagsins er Bjarni J. Gíslason, frá
flugvellinum. *L.S. var
eina starfandi félag lögreglumanna á Suðurnesjum,
uns lögreglumenn starfandi í Keflavík og annarstaðar
á Suðurnesjum gengu úr því 25.nóv.1958
og gengu í félag bæjarstarfsmanna í Keflavík. |
||||||||
| Sameiningar | ||||||||
|
*Árið 1974, nánar tiltekið 20. jan., sameinaðist lögreglufélagið aftur með því að þeir sem úr því gengu 1958 gengu aftur í L.S. *Sú
skipan mála hélst um hríð eða þangað
til Lögreglufélag Gullbringusýslu var stofnað þann
29.mars.1982 og lögregluþjónar annarsstaðar
en á Keflavíkurflugvelli gengu úr L.S.og í
hið nýja félag. Skipting þessi fór fram
í bróðerni en togstreita hafði verið um hríð
milli hópanna, þar sem flugvallarmennirnir voru ávallt
í meirihluta og höfðu verið deilur milli aðila
um uppbyggingu á félagsaðstöðu við lögreglustöðina
á Keflavíkurflugvelli,en hluti þeirra sem voru
ekki starfandi þar höfðu meiri áhuga á að
byggja upp á sínu svæði. Þetta og
reyndar fleiri gömul mál, eins og t.d.Sigtryggsmálið
og fleiri mál voru í reynd rótin að því
að betra þótti að skipta félaginu. *Í
reynd hefur þó ávallt ríkt gott samstarf og
samvinna á milli liðanna og síst meiri deilur þeirra
á milli en gerist á milli manna á hverju svæði
fyrir sig. |
||||||||
| Starfssvæðið | ||||||||
|
*Varnarsvæðið;
almenn löggæsla og sameiginlegt samstarf við herlögregluna
um eftirlit á svæðinu og gæsla í varðskýlum
við innkomu/útleið af svæðinu. *Hin eiginlega
lögreglustöð er nú í bráðabirgðahúsnæði
suður af Flugstöð Leifs Eiríksonar. *Sýslumannsskrifstofan
og aðstaða sumra úr yfirstjórninni er hinsvegar
í gömlu lögreglustöðinni í Grænási,
sem nú er utan við girðingu varnarstöðvarinnar. |
||||||||
| Merki félagsins | ||||||||
| *Höfundur félagsmerkisins er Þorkell Sigurðsson, teiknari úr prentgeiranum á höfuðborgarsvæðinu. Hann var fenginn til að senda inn tillögu í samkeppni sem stjórn L.S. stóð fyrir í janúar 1979. | ||||||||